Enginn Íslendingur óskað eftir aðstoð

Jólamarkaðurinn í Magdeburg mun ekki vera opnaður aftur í ár.
Jólamarkaðurinn í Magdeburg mun ekki vera opnaður aftur í ár. AFP/Ronny Hartmann

Enginn Íslendingur hefur gefið sig fram og óskað eftir aðstoð borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins vegna árásarinnar á jólamarkað í Magdeburg í Þýskalandi í gær.

Hvatti borgaraþjónustan Íslendinga í borginni til þess að láta vita af sér á samfélagsmiðlum eða hafa samband við aðstandendur ef þeir væru óöruggir.

Á sú tilkynning enn við en ef aðstoðar er þörf frá borgaraþjónustunni er fólki bent á að hafa samband við neyðar­núm­er þjón­ust­unn­ar í síma +354 545-0112.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka