Stefnuyfirlýsing Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins var kynnt í Hafnarfirði í dag. Var þar ný ráðherraskipan kynnt en 11 nýir ráðherrar voru kynntir til sögunnar. Fjórir koma úr röðum Samfylkingar, fjórir frá Viðreisn og þrír úr Flokki fólksins.
Sagði Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, að með því að fækka ráðuneytum úr 12 í 11 sparist nokkur hundruð milljónir króna.
„Við ætlum að gera breytingar á menningar-, viðskipta og ferðamálaráðuneytinu. Því verður í raun skipt upp,“ sagði hún.
Viðskipta- og ferðamálaráhlutinn verður færður yfir í matvælaráðuneytið og verður að atvinnuvegaráðuneyti.
Menningarráðuneytið sameinast í háskóla-, viðskipta- og nýsköpunarráðuneyti.
„Við verðum þá með menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.“
Húsnæðismálin verða flutt úr innviðaráðuneytinu yfir í félagsmálaráðuneytið. Innviðaráðuneyti verður þannig að samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti.
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið verður að félags- og húsnæðismálaráðuneyti.
Eins og flestir bjuggust við verður Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, forsætisráðherra.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, verður utanríkisráðherra. Er hún þar í lykilhlutverki í Evrópumálum en þjóðaratkvæðagreiðsla um Evrópusambandið er á dagskrá.
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, verður félags- og húsnæðismálaráðherra enda hefur sá málaflokkur verið áberandi í hennar málflutningi bæði á þingi og í kosningabaráttunni í ár.
Jóhann Páll Jóhannsson, sem var þingmaður Samfylkingarinnar á síðasta kjörtímabili, verður umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Logi Már Einarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, verður menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra
Alma Möller, fyrrverandi landlæknir, verður heilbrigðisráðherra.
Forseti þingsins verður Þórunn Sveinbjarnardóttir.
Daði Már Kristófersson, varaformaður Viðreisnar, verður fjármála- og efnahagsráðherra. Athygli vekur að hann er ekki þingmaður flokksins en er það þó ekki í fyrsta sinn sem slíkt gerist.
Hanna Katrín Friðriksson frá Viðreisn verður nýr atvinnuvegaráðherra. Undir ráðuneytið munu falla málaflokkar landbúnaðar, sjávarútvegs og iðnaðar.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir frá Viðreisn verður dómsmálaráðherra.
Eyjólfur Ármannsson, þingmaður Flokks fólksins, verður samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
Ásthildur Lóa Þórsdóttir hjá Flokki fólksins verður mennta- og barnamálaráðherra.