Agnar Már Másson
Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra Íslands, segir að lög um hvalveiðar á Íslandi séu úrelt og krefjist endurskoðunar.
Þetta kemur fram í samtali hennar við blaðamann mbl.is á Bessastöðum að loknum fyrsta ríkisráðsfundi nýrrar ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins.
Bjarni Benediktsson, sem þá var starfandi matvælaráðherra, gaf 5. desember út leyfi til veiða á langreyðum til Hvals hf. auk leyfis til veiða á hrefnu til tog- og hrefnuveiðibátsins Halldórs Sigurðssonar ÍS 14, sem er í eigu félagsins Tjaldtanga.
Kristrún segir að leyfisveitingin, jafnt eins og önnur mál, verði skoðuð.
„Staðreyndin er auðvitað þannig í dag að það eru leyfðar hvalveiðar í landinu. Þannig lögum samkvæmt þá eru auðvitað leyfðar hvalveiðar,“ segir hún en bætir svo við:
„Við vitum öll hins vegar að þau lög eru mjög úrelt, þau eru mjög gömul og þau munu krefjast ákveðinnar endurskoðunar. Þannig þetta er bara eitthvað sem verður skoðað núna á kjörtímabilinu og við munum leggjast yfir og nýr atvinnuvegaráðherra mun þurfa að skoða þetta vel,“ segir Kristrún.