Persónuafsláttur hækkar í 68.691 kr.

Persónuafsláttur hækkar úr 64.926 krónum á mánuði í 68.691 krónu.
Persónuafsláttur hækkar úr 64.926 krónum á mánuði í 68.691 krónu. Morgunblaðið/Eggert

Persónuafsláttur og þrepamörk tekjuskatts einstaklinga hækka um 5,8% um áramótin og hækkar persónuafsláttur þá úr 64.926 krónum á mánuði í 68.691 krónu, samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í gær, laugardag.

Samkvæmt lögum um tekjuskatt hækka persónuafsláttur og þrepamörk tekjuskatts einstaklinga í upphafi hvers árs sem nemur hækkun á vísitölu neysluverðs næstliðna tólf mánuði að viðbættri hækkun vegna framleiðnivaxtar.

Miðað er við 1% árlega aukningu framleiðni og er það mat tekið til endurskoðunar á fimm ára fresti, næst fyrir tekjuárið 2027.

Graf/mbl.is

Tekjuskattsprósentan óbreytt

Hækkun vísitölu neysluverðs liggur nú fyrir og nemur hún 4,75% á 12 mánaða tímabili. Heildarhækkun viðmiðunarfjárhæða verður því 5,8%.

Tekjuskattsprósentan er óbreytt frá fyrra ári, sem og hámarksútsvar sveitarfélaga, en vegið meðalútsvar hækkar um 0,01 prósentustig fyrir tekjuárið 2025 og verður 14,94%. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka