„Hvassviðrisstormur“ væntanlegur

Mikið hvassviðri verður á vesturhelmingi landsins á morgun.
Mikið hvassviðri verður á vesturhelmingi landsins á morgun. mbl.is/Eggert

Engin breyting hefur orðið á veðurspánni fyrir aðfangadag og mega því landsmenn á vesturhelmingi landsins búast við leiðinda- og erfiðu ferðaveðri á morgun.

Þetta segir Haraldur Eiríksson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.

Nefnir hann að veðrið verði tiltölulega rólegt í nótt og að óveðrið sem herjað hefur á Norðurland, sérstaklega og Austurland, muni ganga niður.

Það byrji svo að hvessa aftur seinni partinn á morgun en þá meira á suður- og vesturlandi og verður þá dimm él annað kvöld.

„Það slær þá væntanlega í svona hvassviðrisstorm og það er hvassast í éljunum,“ segir Haraldur er hann er spurður um hve miklu hvassviðri megi búast við. 

Dregur úr veðrinu eftir jóladag

Segir Haraldur að því fylgi léleg skyggni og því verði erfitt ferðaveður.

Þá verður appelsínugul viðvörun á Suðurlandi, Faxaflóa og á Breiðafirði annað kvöld sem mun ná fram á jóladag en að honum loknum fer svo að draga úr veðrinu.

Landsmenn á norðaustanverðu landinu geta þó fagnað en að sögn Haraldar verður skásta veðrið á landinu á morgun í þeim landshluta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert