Tilfellum RS-veiru fjölgar verulega

Mikið álag er á Landspítalanum vegna faraldurs RS-vírus.
Mikið álag er á Landspítalanum vegna faraldurs RS-vírus. mbl.is/Jón Pétur

Veruleg fjölgun hefur orðið á RS-veirutilfellum hér á landi og er tíðnin mun hærri en síðasta vetur. Samhliða fjölgar tilfellum inflúensu og veldur þetta auknu álagi í heilbrigðisþjónustu. Er þetta í takt við það sem er að gerast í Evrópu, samkvæmt því sem fram kemur á vef embættis landlæknis.

Búast má við verulegri fjölgun tilfella næstu vikurnar auk Covid-19 tilfella, og gefur landlæknir út þau tilmæli að skerpa þurfi á sýkingavörnum. Þá er fólk hvatt til að láta bólusetja sig gegn inflúensu og með uppfærðu bóluefni gegn Covid-19.

Landspítalinn er nú þegar undir miklu álagi vegna RS-vírusfaraldursins, en ungbörn og eldra fólk eru í mestri hættu á að veikjast alvarlega.

30 einstaklingar lágu inni á Landspítalanum í síðustu viku með RS-vírus, þar af 11 ungbörn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert