Hjálpuðu að festa þak á hlöðu

Myndir frá útkallinu.
Myndir frá útkallinu. Ljósmynd/Landsbjörg

Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli var kölluð út fyrr í dag vegna hættu á að þak á hlöðu á bæ suður af Hvolsvelli myndi fjúka.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu.

Þá segir jafnframt að björgunarsveitarfólk hafi farið á staðinn og náð að koma böndum á sperrur og þverbönd inni í hlöðunni og þannig tryggja það að þakið lyftist ekki af.

„10 manns komu að verkefninu sem var lokið rétt um hálf þrjú í dag og hélt þá björgunarfólk aftur heim,“ segir að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert