Búið er að loka Holtavörðuheiði. Vegagerðin tilkynnti í dag að leiðinni yrði lokað klukkan 19.30 í kvöld.
Var það gert vegna öryggisástæðna og slæms veðurútlits, að því er segir á vef Vegagerðarinnar, umferdin.is.
Hálkublettir eða snjóþekja eru á flestum leiðum á Suðvesturlandi. Flughálka er á Kjósarskarðsvegi og Suðurstrandavegi en Krýsuvíkurvegur er ófær.
Sömuleiðis er flughált í Staðarsveit sem og á nokkrum vegum á Suðurlandi.
Veginum um Súðavíkurhlíð hefur verið lokað vegna snjóflóðahættu. Ófært er í Ísafjarðardjúpi milli Súðavíkur og Skötulfjarðar. Búið er að loka Dynjandisheiði.
Hálka eða hálkublettir eru á flestum leiðum á Austurlandi og er ófært um Breiðdalsheiði og Öxi.