Vegurinn um Súðavíkurhlíð lokaður vegna snjóflóðs

Súðavíkurhlíð er lokuð.
Súðavíkurhlíð er lokuð. Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson

Vegurinn um Súðavíkurhlíð er lokaður en snjóflóð féll á veginn í nótt eða snemma í morgun.

Atli Freyr Rúnarsson, verkstjóri Vegagerðarinnar á Ísafirði, segir að vinna standi yfir að hreinsa veginn og verið sé að meta það hvort vegurinn verði opnaður fyrir almenning í dag en það yrði þá aðeins í stuttan tíma.

„Það féll nokkuð stórt flóð yfir veginn í nótt eða í morgun og fleiri minni flóð hafa fallið í morgun,“ segir Atli Freyr við mbl.is.

Fram kemur á vef Vegagerðarinnar, umferðin.is, að vegurinn um Ísafjarðardjúp sé ófær og verður hann ekki hreinsaður í dag. Þess í stað verði farið í að moka Dynjandisheiði en hún er sem stendur enn ófær.

Uppfært klukkan 13:00

Vegurinn um Súðavíkurhlíð er opinn og er á óvissustigi vegna snjóflóðahættu. Vegna snjóflóðahættu verður veginum lokað aftur kl. 16:00 í dag.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert