Fasteignafélagið Þórkatla segir að æskilegt hefði verið að hugsa betur fyrir geymsluplássi á innbúi þeirra sem seldu eignir sínar í Grindavík til fasteignafélagsins.
Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri útgerðarfélagsins Vísis, gagnrýndi Þórkötlu í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.
Sakaði hann stjórnendur fasteignafélagsins um að hafa tekið „rangar ákvarðanir“ og sett Grindvíkingum strangar kvaðir.
Sagði hann að hundruð tonn úr búslóðum Grindvíkinga hafi ratað á haugana, þar sem Grindvíkingar hafi þurft að tæma allt úr húsunum sínum.
Þórkatla ber fyrir sig að mikill þrýstingur hefði verið á félagið til að ganga sem fyrst frá kaupum á eignunum svo að Grindvíkingar gætu fest sér annað húsnæði, að því er fram kemur í tilkynningu frá Þórkötlu.
Þórkatla, sem annast kaup, umsýslu og ráðstöfun húsnæðis í Grindavík, tilkynnti í nóvember að þeir sem hefðu selt félaginu hús sín í Grindavík gætu nú gert svokallaðan „hollvinasamning“ um afnot af húsinu og greiða þá aðeins fyrir hita og rafmagn. Fólki væri aftur á móti ekki heimilt að dvelja þar yfir nótt.
„Fasteignafélagið Þórkatla, sem keypti húseignir Grindvíkinga, hefur fullan skilning á því að fólk vilji gjarnan dvelja í fyrrum húsum sínum í bænum yfir nótt. Þetta er hins vegar nokkrum vandkvæðum bundið vegna hættuástandsins sem enn ríkir á svæðinu,“ segir í tilkynningu fasteignafélagsins.
„Samkvæmt lögum bera fasteignareigendur, í þessu tilfelli Þórkatla, ríka ábyrgð á öryggi í eignum sínum. Það er á grundvelli þessarar ábyrgðar sem sú ákvörðun var tekin að fólk geti ekki að sinni dvalið yfir nótt í húsum félagsins í Grindavík.“
Sú ákvörðun verði endurskoðuð um leið og kvikusöfnun í Sundhnúkagígum hættir og líkur á eldgosi verði minni.
„Á þeim tímapunkti mun félagið geta hafið sölu og útleigu þeirra húsa sem félagið hefur eignast í Grindavík, til viðbótar við gerð hollvinasamninga.“
Sem stendur hafi verið gerðir um fjörutíu slíkir samningar. Um 920 eignir séu alls í eigu félagsins í bænum.