Hætta stafar af eldri feðrum, ekki mæðrum

Kári er í ítarlegu viðtali í Tímamótum, áramótablaði Morgunblaðsins, og …
Kári er í ítarlegu viðtali í Tímamótum, áramótablaði Morgunblaðsins, og ræðir þar um rannsóknir fyrirtækisins og fleira. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Við höfum sýnt fram á hvernig nýjar stökkbreytingar koma miklu oftar frá föður en móður,“ segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.

„Barn sem er getið af fertugum föður flytur afkvæmi sínu tvisvar sinnum fleiri nýjar stökkbreytingar en það sem er getið af tvítugum föður. Það vill svo til að hættan á einhverfu er tvisvar til þrisvar sinnum meiri hjá barni sem er getið af fertugum föður en tvítugum. Hættan á geðklofa er töluvert miklu meiri hjá barni sem er getið af fertugum föður en þeim sem er tvítugur. Krabbamein barna eru, guði sé lof, fágæt en þau eru undir miklum áhrifum af þessum nýju stökkbreytingum.“

Kári er í ítarlegu viðtali í Tímamótum, áramótablaði Morgunblaðsins, og ræðir þar um rannsóknir fyrirtækisins og fleira.

Kári segir að þegar hann var í læknaskóla hafi nemendum verið kennt að hár aldur móður væri stórhættulegur barni.

„Það vill svo til að hár aldur föður er miklu hættulegri. Þegar þú ferð að skoða örlög barna eftir aldri móður við fæðingu er sennilega fátt betra barni en að vera fætt af aldraðri móður.

Barn sem fætt er af aldraðri móður er einstaklingur sem nær sér í meiri menntun, er í mun minni hættu á fíknisjúkdómum og í mun minni hættu á hjarta- og æðasjúkdómum. Þannig að það er búið að snúa þessu öllu við. Hinn aldraði faðir er stóra hættan,“ segir Kári Stefánsson í viðtalinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka