Ökumaður var fastur á Klettshálsi á sunnanverðum Vestfjörðum í tvo til þrjá tíma í nótt. Björgunarsveitir voru sendar á vettvang, en fyrst um sinn var talið að ökumaðurinn væri á Dynjandisheiði.
Þetta segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, í samtali við mbl.is.
Útkallið barst um kl. 23 í gær. Ökumaðurinn hringdi í neyðarlínuna og tilkynnti að hann kæmist ekki land né strönd. Símasambandið var slæmt og var talið í fyrstu að hann væri staddur á Dynjandisheiði.
Björgunarsveitir á Ísafirði og Þingeyri voru í kjölfarið kallaðar út. Þær keyra um alla heiðina en sjá ekki bílinn. Þegar þær koma niður að Flókalundi er málið skoðað betur.
Vefmyndavélar Vegargerðarinnar voru skoðaðar og á þeim sáust bílljós á Klettshálsi. Þá er björgunarsveitin á Reykhólum kölluð út og hún keyrir á móti björgunarsveitum frá Þingeyri og Ísafirði.
Loks finnst ökumaðurinn. Þá er bílinn losaður og honum snúið við þar sem talið var óráðlegt að hann héldi för áfram, en ferðinni var heitið á Bíldudal. Björgunarsveitir fylgdu bílnum tilbaka og var ökumanninum svo hjálpað við að finna gistingu.
Björgunarsveitarmenn frá Þingeyri og Ísafirði voru komnir til síns heima um kl. 4.30 í nótt.