Húsfylli var í samfélagskvöldverði No Borders í gærkvöldi.
Samtökin buðu um það bil 100 manns á flótta í kvöldverðinn og var þar áhersla á inngildingu höfð að leiðarljósi.
„Saman áttum við ómetanlega og fallega kvöldstund sem einkenndist af dásamlegum mat, samstöðu og mannúð,“ segir í tilkynningu samtakanna.