Stór jarðskjálfti varð við Eldey rétt fyrir kl. 14 í dag og hafa nokkrir smærri fylgt í kjölfarið. Gerist þetta í framhaldi af skjálftahrinu sem reið yfir svæðið í nótt en þá mældist annar skjálfti yfir 3 að stærð.
Skjálftinn, sem mældist kl. 13.55, er 3,6 að stærð samkvæmt tölum Veðurstofunnar og átti upptök sín um 5,5 kílómetrum NNA af Eldey á Reykjaneshrygg.
Skjálftinn var því um 25 kílómetrum frá Grindavík en reglulega koma jarðskjálftahrinur á flekaskilunum á Reykjaneshrygg.
Að minnsta kosti níu smærri skjálftar hafa fylgt í kjölfarið samkvæmt vef Veðurstofunnar.
Önnur skjálftahrina varð við Eldey í nótt. Um kl. 4.02 í nótt mældist skjálfti af stærðinni 3,2 og honum fylgdu um 20 smærri skjálftar allt frá 0,1 upp í 2,8 að stærð.
Frétt hefur verið uppfærð með nákvæmari tölum frá Veðurstofu Íslands.