Allt kapp verður lagt á að bregðast við röskun á sorphirðu í Múlaþingi í upphafi nýs árs. Beðist er afsökunar á þeirri röskun sem hefur orðið.
Svo segir í tilkynningu á vef sveitarfélagsins, en í gær greindi mbl.is frá því að dæmi er um að sorp hafi ekki verið sótt síðan um miðjan nóvember í sveitarfélaginu. Mikil umræða hefur skapast um málefnið í íbúahópum á samfélagsmiðlum.
Múlaþing birti í gær sorphirðudagatal fyrir árið 2025 fyrir Seyðisfjörð, Djúpavog og dreifbýli, Egilsstaði og Fellabæ og dreifbýli Fljótsdalshéraðs.
Gert er ráð fyrir nokkurra daga svigrúmi í upphafi árs til að bregðast við þeirri röskun sem hefur orðið á hirðu á ákveðnum stöðum.
„Fjölmargar ábendingar og kvartanir hafa borist sveitarfélaginu vegna sorphirðu undanfarnar vikur og verður allt kapp lagt á að bregðast við í upphafi nýs árs.“
Þá segir að dagatölin séu til viðmiðunar því losunardagar geta breyst án fyrirvara til dæmis vegna veðurs. Almennt á sorphirðu þó ekki að skeika meira en 1 til 2 dögum.
Í tilkynningu sem birtist á vef Múlaþings um miðjan desember sagði að sorphirðufyrirtækið Kubbur hafi formlega tekið við meðhöndlun úrgangs í sveitarfélaginu sem var áður í höndum Íslenska Gamafélagsins.
Samningur við Kubb var undirritaður þann 6. desember til næstu fjögurra ára í kjölfar útboðs. Samningurinn var undirritaður rúmum mánuði seinna en gert var ráð fyrir í útboði vegna sjálfkrafa samningsstöðvunar í kjölfar kæru.
Skammtímasamningar voru gerðir í millitíðinni og var vonast eftir því að sorphirða samkvæmt losunaráætlun héldist en það gekk ekki eftir.
UHA Umhverfisþjónusta ehf. kærði ákvörðun Múlaþings og Fljótsdalshrepps um að hafna tilboði fyrirtækisins í útboði til úrgangsþjónustu í ágúst til kærunefndar útboðsmála. Öllum kröfum fyrirtækisins var hafnað af nefndinni 2. desember.