Í dag verður vestlæg eða breytileg átt og 5 til 13 metrar á sekúndu. Dálítil él verða og frost 0 til 10 stig, en hlánar við suðvesturströndina. Bjart verður að mestu á Suðausturlandi. Dregur úr vindi seinnipartinn.
Breytileg átt og 3 til 10 m/s verða á morgun. Slydda verður suðvestanlands fram eftir morgni, annars él en úrkomulítið austantil. Heldur vaxandi norðaustanátt verður annað kvöld.