Fundur hefur verið boðaður í kjaraviðræðum kennara, ríkis og sveitarfélaga á morgun, eftir að hlé var gert á viðræðum yfir hátíðarnar. Staðan er enn þannig að of snemmt er segja til um hvort samningar náist fyrir janúarlok, en verkföll hefjast aftur 1. febrúar, semjist ekki fyrir þann tíma.
Verkefnið er seinlegt meðal annars vegna þess hve ólík afstaða samningsaðila er til þess hvernig nálgast eigi mögulegar breytingar á störfum kennara og skólastarfi í landinu, að sögn ríkissáttasemjara.
„Við erum að tala okkur saman í dag og átta okkur á því hvernig við höldum áfram,“ segir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari í samtalið við mbl.is.
„Það hefur ekkert breyst yfir hátíðarnar, þannig nú er bara að taka upp þráðinn og halda áfram,“ bætir hann við.
Í lok nóvember skrifuðu deiluaðilar undir rammasamkomulag um hvernig ætti að standa að frágangi kjarasamnings við Kennarasambands Íslands og vegferðina þangað. Þá var verkföllum frestað út janúar.
Þá voru einnig tryggð tvö atriði í samningnum sem kennarar lögðu áherslu á. Annars vegar að á árinu 2025 verði tekið skref í átt að jöfnun launa á milli markaða og launatöfluauki var fastsettur.
Ástráður sagði í samtali við mbl.is um miðjan desember að of snemmt væri að spá fyrir um hvort samningar næðust fyrir janúarlok, en þá hefjast verkfallsaðgerðir að nýju. Hann segir stöðuna í raun enn vera þannig að spámennska sé erfið.
„Það hefur þokast hægt og rólega í að móta einhvern viðræðugrundvöll, en nákvæmlega hversu langan tíma þetta tekur, það get ég ekki sagt.“
Ástráður segir ágætan anda í viðræðunum og að samningsaðilar hafi náð þokkalegum trúnaði sín á milli.
„En það er auðvitað þannig að grundvallarverkefnið er eitthvað sem menn sjá mjög ólíkum augum. Það er að vísu þannig að eftir að við náðum samkomulagi um frestun verkfallanna þá vorum við um leið að ganga frá ákveðnum grunnþáttum um hvernig við ætlum að nálgast málin. Þar með gátum við tekið það út fyrir sviga.
En eftir situr að allar breytingar á störfum fólks og skólastarfinu í landinu sem verið er að ræða og velta fyrir sér hvort að hægt sé að gera, eru í eðli sínu þannig að þær varða marga og eru flóknar og mjög ólík afstaða aðilanna hvernig á að nálgast. Þess vegna er þetta seinlegt verkefni.“
Náist samningar ekki fyrir 1. febrúar munu verkfallsaðgerðir kennara hefjast að nýju og verkföll skella á í þeim skólum sem þegar hafa samþykkt verkfallsboðun. Þá munu verkföll hefjast á ný í leikskólum, þar sem ótímabundnar aðgerðir stóðu yfir.