Ísland mun greiða framlög til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna, UNRWA, fyrr en áætlað var í ljósi gríðarlegrar mannúðarþarfar á Gasasvæðinu og segir utanríkisráðherra öruggt að framin hafi verið brot á alþjóðalögum á svæðinu.
Þetta kemur fram í færslu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á Facebook.
Segir hún ástandið á Gasasvæðinu óásættanlegt og sýna allar verstu og grimmustu hliðar mannlegs eðlis.
„Það er öruggt að framin hafa verið alvarleg brot á alþjóðalögum – jafnvel það sem okkur er tamt að tala um sem þjóðarmorð, en úr því fæst ekki endanlega skorið nema fyrir alþjóðadómstólum. Ég veit að íslensku þjóðinni ofbýður þetta ástand – og það sama á við um mig,“ skrifar Þorgerður og heldur áfram.
„Ég ræddi í dag við framkvæmdastjóra UNRWA, Philippe Lazzarini, og staðfesti við hann að Ísland mun greiða framlög til stofnunarinnar fyrr en áætlað var, í ljósi gríðarlegrar mannúðarþarfar. Ísland metur mikils það mikilvæga starf sem Lazzarini og starfsfólk hans inna af hendi við afar krefjandi aðstæður.“
Þá ræddi hún einnig við yfirmann mannúðar- og uppbyggingarmála Sameinuðu þjóðanna fyrir Gasa, Sigrid Kaag, þar sem farið var yfir mikilvægi þess að komið yrði á vopnahléi, bæta aðgengi að mannúðaraðstoð og finna leið að lausn fyrir fólkið á svæðinu.
„Því staðan núna er óviðunandi.“
„Það er mín einlæga trú að alþjóðasamfélagið geti gert meira og talað hærra - fyrir friði og fyrir fólkið sem býr við óhugsandi og grimmilegar aðstæður á degi hverjum. Þar getum við Íslendingar sannanlega orðið að liði. Við komuna í utanríkisráðuneytið einsetti ég mér að beita rödd minni hvert sem ég fer, í þágu mannúðar og frelsis,“ skrifar utanríkisráðherrann í færslu sinni.
Þá upplýsir hún að hún hafi óskað eftir fleiri samtölum við forsvarsmenn alþjóðastofnanna og ríkja sem koma að deilunni til að öðlast dýpri skilning á stöðunni, gera grein fyrir afstöðu Íslands og bjóða fram krafta landsins.
„Ísland stendur með saklausum borgurum og börnum sem líða fyrir þessar ólýsanlegu hörmungar. Þessum hryllingi verður að linna.“