Vegurinn um Mosfellsheiði er lokaður vegna veðurs og fastra bíla að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar, umferðin.is.
Þungfært er á Berufjarðarhálsi en þæfingsfærð er á Dynjandisheiði og á Klettshálsi. Hálka og snjóþekja er á flestum leiðum á Vestfjörðum.
Vegurinn um Víkurskarð er lokaður en snjóþekja eða hálka er á flestum leiðum ásamt éljagangi eða skafrenningi á Norður- og Norðausturlandi.
Ófært er á Öxi og Breiðdalsheiði og þæfingsfærð er á Vatnsskarði eystra. Þæfingsfærð er á Skálholtsvegi og Grafningsvegi efri og þá er vegurinn um Lyngdalsheiði lokaður vegna veðurs.