Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra er ekki „bálskotin“ í hugmyndum sem Guðrún Hafsteinsdóttir, fyrrverandi dómsmálaráðherra, reifaði um að senda fanga með erlendan ríkisborgararétt til afplánunar erlendis.
Guðrún sagði í samtali við mbl.is í september 2024 að henni þætti sjálfsagt að skoða það að semja við önnur ríki um að hýsa fanga með erlendan ríkisborgararétt „í ljósi aukins þrýstings á fangelsiskerfin um allan heim. Sérstaklega í tilfellum fanga sem komu hingað til lands í þeim eina tilgangi að stunda glæpi og hafa engin önnur tengsl við Ísland,“ sagði Guðrún. Þó hefði ráðuneytið ekki farið í sérstaka skoðun á slíku úrræði.
Hlutfall erlendra ríkisborgara sem afplánuðu dóm á Íslandi árið 2024 var 33%, sem er það mesta frá upphafi.
Þorbjörg segir að þetta sé ekki hugmynd sem hafi verið rædd hjá þessari ríkisstjórn né þeirri fyrri.
Hugnast þér þessi hugmynd, að senda fanga úr landi?
„Ég er svona við fyrstu sýn ekki bálskotin í hugmyndinni,“ segir Þorbjörg.
Danir sömdu á síðasta ári við Kósóvó um að hýsa 300 fanga sem hlutu dóm í Danmörku. Dagblaðið Telegraph greindi frá því á síðasta ári að dómsmálaráðuneytið í Bretlandi væri að skoða það að semja við Eistland um að hýsa fanga fyrir sig.
Samkvæmt svörum Fangelsismálastofnunar við fyrirspurn mbl.is þá eru á boðunarlista til að afplána dóm 340 manns og á boðunarlista í samfélagsþjónustu 180 manns.
Þar að auki eru yfir 182 á boðunarlista sem eru farnir úr landi og nokkrir óunnir dómar sem eru að fara í boðun.