Bjart á Suður- og Vesturlandi

Hitaspá á landinu klukkan 12 á hádegi.
Hitaspá á landinu klukkan 12 á hádegi. Kort/Veðurstofa Íslands

Það verður bjart að mestu á Suður- og Vesturlandi í dag en él um norðanvert landið. Það eru norðan 5-15 m/s, hvassast austan til. Það lægir seint í dag og styttir upp fyrir austan. Frostið verður 3 til 17 stig og verður kaldast inn til landsins.

Í hugleiðingum Veðurfræðings segir að lægð yfir Skandinavíu og hæðarhryggur á Grænlandssundi beini til okkar norðlægri átt.

Á morgun verða sunnan 8-13 m/s norðan til, en annars hægari vindur. Víða verður bjartviðri og áfram kalt, en það þykknar upp vestan til seinni partinn með stöku éljum og minnkandi frosti.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert