Hnífamaður áfram í haldi

Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í áframhaldandi fjögurra vikna gæsluvarðhald, eða til 4. febrúar, að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegri líkamsárás í húsi á Kjalarnesi á nýársnótt.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni, að tveir hafi særst alvarlega í árásinni þar sem hnífi var beitt og hlaut annar þeirra lífshættulega áverka.

Maðurinn, sem nú hefur verið gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi, var handtekinn á vettvangi.

Rannsókn málsins miðar vel að sögn lögreglu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert