Telja eldinn hafa komið frá ólöglegri kamínu

Tilkynnt var um eldinn klukkan korter í tíu í gærkvöldi.
Tilkynnt var um eldinn klukkan korter í tíu í gærkvöldi. Ljósmynd/Brunavarnir Austur-Húnavatnssýslu

Miklar skemmdir eru á þriðjungi iðnaðarhúsnæðis sem eldur kviknaði í á Blönduósi seint í gærkvöldi. Slökkviliðið leiðir líkur að því að eldurinn eigi uppruna sinn að rekja til kamínu sem ekki var leyfi fyrir.

Ingvar Sigurðsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Austur-Húnvetninga, bendir þó á að lögreglan á Blönduósi fari með rannsókn málsins og verði að svara fyrir hver hin staðfesta orsök er.

Miklar skemmdir urðu á þriðjungi húsnæðisins.
Miklar skemmdir urðu á þriðjungi húsnæðisins. Ljósmynd/Brunavarnir Austur-Húnavatnssýslu

Kamína á staðnum sem ekki var leyfi fyrir

„Skemmdir eru miklar á einum þriðja af húsnæðinu og einhverjar reykskemmdir á hinum tveimur þriðju,“ segir Ingvar í samtali við mbl.is.

Hann segir einnig að iðnaðarhúsnæðið hafi ekki verið í góðu ásigkomulagi fyrir eldsvoðann.

„Þetta er kannski svona húsnæði sem hefur verið vanrækt í einhvern tíma.“

Iðnaðarhúsnæðið var ekki í góðu ásigkomulagi fyrir eldsvoðann.
Iðnaðarhúsnæðið var ekki í góðu ásigkomulagi fyrir eldsvoðann. Ljósmynd/Brunavarnir Austur-Húnavatnssýslu

Þá nefnir hann að kamína hafi verið í húsnæðinu sem eigi ekki að vera til staðar í iðnaðarhúsnæði og var ekki á neinum teikningum af húsinu.

„Slökkviliðið leiðir líkur að því að þetta hafi verið út frá kamínu og þarna var kamína sem var greinilega ekki á teikningum og ekki leyfi fyrir og ætti ekki að vera í þessu iðnaðarhúsnæði.“

Slökkviliðið telur orsök eldsins vera kamínu sem ekki var leyfi …
Slökkviliðið telur orsök eldsins vera kamínu sem ekki var leyfi fyrir að hafa í húsnæðinu. Ljósmynd/Brunavarnir Austur-Húnavatnssýslu

Frost gerði erfiðara fyrir

Engin önnur húsnæði í grennd hlutu skaða af brunanum en segir Ingvar að mikið frost hafi gert slökkviliðinu erfiðara fyrir við vinnu sína í gær, en þrjá tíma tók að slökkva eldinn.

Ljósmynd/Brunavarnir Austur-Húnavatnssýslu

Búið er að vera 10-12 gráðu frost á svæðinu.

Það verður allt erfiðara með vatn. Bæði myndast hálka og svo frýs í lögnum og öðru.

Ljósmynd/Brunavarnir Austur-Húnavatnssýslu
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert