25 stiga frost á Þingvöllum

Hitaspáin, eða öllu heldur kuldaspáin, á landinu kl. 15 í …
Hitaspáin, eða öllu heldur kuldaspáin, á landinu kl. 15 í dag. Kort/Veðurstofa Íslands

Það hefur verið ansi kalt á landinu í dag og ef litið er á mælingar á vef Veðurstofu Íslands sést að mesta frostið á landinu í dag mældist vera 25,8 stig á Þingvöllum.

Næst kaldast var á Mývatni á Norðurlandi en þar mældist frostið vera 23,7 stig. 

Rauðar tölur voru þó hér og þar, en samkvæmt yfirlit Veðurstofunnar mældist 2,3 stiga hiti í Vestmannaeyjum og 3,2 stiga hiti í Surtsey. 

Víða bjartviðri

Þegar horfurnar næsta sólarhringinn eru skoðaðar, þá er gert ráð fyrir sunnan 8-15 m/s norðantil, annars hægari vindi. Víða bjartviðri og frost 3 til 20 stig, kaldast inn til landsins.

Það mun þykkna upp vestanlands seinnipartinn í dag með stöku éljum og minnkandi frosti.

Suðaustan 8-15 og skúrir eða slydduél á morgun, en hægari og skýjað með köflum norðaustanlands. Hlýnar er líður á daginn, hiti 0 til 6 stig síðdegis, en vægt frost austantil, að því er segir á vef Veðurstofu Íslands. 

Búast má við miklum leysingum

Þá hefur veðurfræðingur birt athugasemd á vefnum þar sem hann bendir á að aðfaranótt sunnudags gangi í suðaustan hvassviðri með rigningu.

„Búast má við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikil hálka getur myndast þar sem rignir á klakabunka eða þjappaðan snjó. Mikilvægt er að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám.“

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert