Boðaðar verðhækkanir vinni gegn samningsforsendum

Verðhækkanirnar eru sagðar vinna gegn samningsforsendum kjarasamninga.
Verðhækkanirnar eru sagðar vinna gegn samningsforsendum kjarasamninga. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fagfélögin gagnrýna harðlega verðhækkanir á matvöru og öðrum nauðsynjavörum og segja þær vinna gegn samningsforsendum stöðugleika- og velferðarkjarasamninga. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fagfélögunum: Félagi vélstjóra og málmtæknimanna, Rafís og Matvís.

„Vakin er athygli á að samningsforsendur Stöðugleika- og velferðarkjarasamningsins kveða á um að 12 mánaða verðbólga í ágúst í ár mælist ekki yfir 4,95%. Boðaðar verð- og gjaldskrárhækkanir vinna bersýnilega gegn því markmiði,“ segir í tilkynningunni.

Skora fagfélögin á birgja og matvöruverslanir að draga áform um verðhækkanir til baka og vinna með samfélaginu að því markmiði að draga úr verðbólgu og að áframhaldandi lækkun vaxta.

Vöruverð á heimsvísu á niðurleið

Vísað er til þess að talsmenn stærstu matvöruverslana landsins hafi í desember boðað umtalsverðar verðhækkanir á matvöru. Formaður Neytendasamtakanna hafi í kjölfarið sagt að menn virtust vera að panta verðhækkanir.

Þá sé áhugavert að skoða þróun og horfur verðlags á matvöru í löndunum kringum okkur. 

„Í Peningamálum kemur fram að verðbólga í helstu viðskiptalöndum Íslands sé á niðurleið. Í nýrri skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (World Economic Outlook) kemur fram að vöruverð á heimsvísu sé á niðurleið.“

Í sömu skýrslu komi fram að evrópsk fyrirtæki geti tekið á sig launahækkanir án þess að fleyta þeim út í verðlagið. 

ASÍ hafi einnig bent á að hrávöruverð á matvöru hafi lækkað um 2% á síðasta ári og miklar verðhækkanir áranna 2022-2023 þannig gengið til baka. 

Í ljósi þessa skora fagfélögin á birgja og matvöruverslanir að draga áform um verðhækkanir til baka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert