Mikið áhorf á Áramótaskaupið

Hanna gladdi marga áhorfendur á gamlárskvöld.
Hanna gladdi marga áhorfendur á gamlárskvöld. Skjáskot/RÚV

Um 75% landsmanna horfðu á Áramótaskaup Sjónvarpsins á gamlárskvöld. Fjölmargir hafa auk þess horft á skaupið eftir ýmsum leiðum eftir að það var fyrst sent út, samkvæmt upplýsingum frá RÚV.

Áramótaskaupið er jafnan vinsælasti dagskrárliður ársins í sjónvarpi og sú virðist hafa verið raunin nú. Það að 75% landsmanna hafi setið við skjáinn á gamlárskvöld er þó síður en svo met því fyrir tveimur árum var áhorfið minnst 81% við frumsýningu skaupsins.

Fyrstu fimm dagana í janúar var Áramótaskaupið vinsælasti dagskrárliðurinn í spilara RÚV á heimasíðu þess og í snjallsjónvörpum. Þar var skaupið spilað 46 þúsund sinnum.

Vinsælast er skaupið sjálft en einnig er hægt að spila stök atriði og þar er lokalagið vinsælast. Upphafs­lag skaupsins kemur þar á eftir, þá Skólarapp, því næst atriði með eldfjallafræðingum og þar á eftir atriðið með hefðbundnu Hönnu.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert