Vonast til að kynna hagræðingaraðgerðir í vor

Yfir 2.800 umsagnir hafa borist inn á samráðsgátt.
Yfir 2.800 umsagnir hafa borist inn á samráðsgátt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að enn sé verið að móta hvernig sé best fyrir ríkisstjórnina að kynna hagræðingaraðgerðir í kjölfar vinnu í tengslum við sparnaðarráð almennings. Hún vonast til þess að hægt sé að ráðast í fyrstu aðgerðir í vor.

Þetta kemur fram í samtali hennar við mbl.is í lok ríkisstjórnarfundar í morgun.

„Sumt mun vera aðgerðir sem hægt er að sýna strax á spilin í, eitthvað sem við getum vonandi ráðist strax í á þessu vorþingi. Annað er eitthvað sem þarf að spinna og vefja inn í fjármálaáætlunina. Enn annað kemur strax í fjárlögunum og svo eru líka tillögur sem taka lengri tíma og við viljum að komist í gegnum Stjórnarráðið á þessu kjörtímabili,“ segir Kristrún í samtali við mbl.is.

Yfir 2.800 umsagnir í samráðsgátt

Síðan að opnað var fyrir umsagnir í samráðsgátt um hvernig megi hagræða í rekstri ríkisins þá hafa yfir 2.800 umsagnir borist.

Kristrún seg­ir að starfsmenn í fjár­málaráðuneyt­inu og for­sæt­is­ráðuneyt­inu muni vinna úr umsögnum almennings í samráðsgátt og að gervigreind verði nýtt til að hjálpa við verkefnið.

„Við fáum hagræðingarhóp líka sem fer yfir stóru myndina,“ segir Kristrún. 

Þrír full­trú­ar munu sitja í þeim hópi og Kristrún Frosta­dótt­ir mun velja þríeykið í sam­ráði við for­menn sam­starfs­flokk­anna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert