Einn heppinn miðaeigandi vann tvöfaldan fyrsta vinnig í lottó í gær og fær því rúmlega 20,8 milljónir. Miðinn var í áskrift.
Þrír skiptu með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra 173 þúsund krónur.
Enginn var með fyrsta vinning í Jóker en tveir áskrifendur fengu annan vinning og fá þeir 125 þúsund krónur.