Fuglaflensa: Fólk haldi köttum innandyra

Fólk er hvatt til að halda heimilisköttum innandyra.
Fólk er hvatt til að halda heimilisköttum innandyra. Samsett mynd/Colourbox/Gunn­ar Þór Hall­gríms­son

Íbúar á höfuðborgarsvæðinu sem verða varir við dauða eða veika fugla eru beðnir um að meðhöndla þá ekki heldur hafa tafarlaust samband við Dýraþjónustuna. Reykjavíkurborg hefur sent tilmæli til borgarbúa vegna fuglaflensufaraldurs í Reykjavík, sem herjar einkum á gæsir, og kattaeigendur eru hvattir til þess að halda heimilisköttum innandyra.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Ef fólk verður vart við dauða eða veika fugla er það beðið um að hafa samband símleiðis eða með tölvupósti í Dýraþjónustu Reykjavíkur. Síminn er 822-7820.

19 dauðar gæsir

„Fólk er beðið um að gefa góða lýsingu á staðsetningu fuglanna og ef mögulegt er, senda myndir. Ef fólk verður vart við fugla í vanda eða dauða fugla utan þjónustutíma Dýraþjónustunnar er það beðið um að hafa samband við Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu.“

Gunn­ar Þór Hall­gríms­son, pró­fess­or í dýra­fræði, fann 19 dauðar grá­gæs­ir í Vatns­mýri í Reykja­vík í gær. All­ar lík­ur eru á því að fuglaflensa hafi dregið gæs­irn­ar til dauða.

Fyrstu fuglaflensu­til­fell­in komu upp hér á landi árið 2021 og nokkuð var um smit árið 2022 en svo virðist sem um al­var­leg­an far­ald­ur sé að ræða nú að sögn Gunn­ars í samtali við mbl.is í gær. 

Tilmæli til katta- og hundaeigenda

Hvatt er til þess að fólk haldi heimilisköttum inni á meðan skæða inflúensan gengur yfir „en hún er bráðsmitandi og getur borist í ketti líkt og fugla.“

Ef viðra þarf kettina þá er mælt með því að þeir séu hafðir í taumi. Einnig eru hundaeigendur hvattir til að passa að hundar þeirra fari ekki í fuglshræ jafnvel þótt engin staðfest smit yfir í hunda séu þekkt.

Heim­il­iskött­ur á Seltjarn­ar­nesi greind­ist á dögunum með skæða fuglaflensu og talið er að hann hafi smit­ast af fugls­hræi. 10 vikna gamall kett­ling­ur­inn drapst fyrir jól sök­um flens­unn­ar.

Um 40 sýni tekin í síðasta mánuði

Dýraþjónusta Reykjavíkur mun sjá um þjónustu vegna fuglaflensu á öllu höfuðborgarsvæðinu í samstarfi við Matvælastofnun. 

„Starfsfólk Dýraþjónustunnar í Reykjavík hefur unnið þétt með sérfræðingum á Matvælastofnun undanfarna mánuði. Í síðasta mánuði hafa þau meðal annars tekið um 40 blóðsýni af fuglum sem grunur leikur á að hafi smitast af þessari skæðu fuglainflúensu. Síðustu daga hafa komið fjölmargar tilkynningar um veika eða dauða fugla sem þau hafa sinnt,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert