Líkleg tölvuárás hjá Toyota

Úr sýningarsal Toyota í Kauptúni.
Úr sýningarsal Toyota í Kauptúni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tölvukerfi Toyota og Bílanaust liggja niðri og er talið að árás hafi verið gerð á kerfin aðfaranótt mánudags.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Toyota er þar segir að unnið sé að viðbrögðum í samvinnu við sérfræðinga á þessu sviði.

„Tekið er við bílum í þjónustu á verkstæðum fyrirtækisins og hjá þjónustuaðilum en afgreiðsla gæti tekið lengri tíma en venjulega. Símasamband við skiptiborð liggur niðri en hafa má samband gegnum síma 693 3088 og 693 3080 og á vefspjalli á toyota.is,“ segir enn fremur í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert