Sigurður G. Guðjónsson, lögfræðingur samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, gagnrýnir mótmæli Eflingar fyrir utan Finnson Bistro í Kringlunni um helgina.
Í færslu titlaðri „Verndari sæluríkisins“ á Facebook-reikningi sínum í morgun segir Sigurður hvorki Eflingu né Félagsdóm hafa vald til að fjalla um og ákveða hvort SVEIT sé lögmætt félag.
„Húseigandi hafði ekki heimilað Eflingu að halda fund í Kringlunni hvað þá að ráðast að lögmætri starfsemi sem þar fer fram. Frá öllu þessu var skilmerkilega greint í fjölmiðlum, sem leituðu þó ekki eftir afstöðu SVEIT, ef frá er talin Stöð 2,“ segir í færslu Sigurðar.
Veitingamenn kölluðu lögreglu til þegar félagsmenn Eflingar mótmæltu fyrir utan veitingastaðinn Finnsson í Kringlunni um hádegisleytið á laugardaginn. Formaður Eflingar, Sólveig Anna Jónsdóttir, gekk fremst fyrir mótmælunum og kallaði Virðingu „gervistéttarfélag“.
Efling hefur háð ákafa herferð gegn Virðingu og telur að félagið hafi verið stofnað af SVEIT, samtökum fyrirtækja í veitingarekstri, til þess að geta samið um lægri kjör við stafsfólk heldur en samningar Eflingar geri ráð fyrir. Mörg af stærstu stéttarfélögum landsins hafa fordæmt Virðingu.
Í færslu sinni segir Sigurður Sólveigu ásamt Víði Þorsteinssyni og Sæþóri Benjamín Randalssyni hafa verið í fararbroddi ófrægingarherferðar Eflingar gegn atvinnurekendum sem séu félagar í SVEIT og sakað þá um svik gagnvart starfsmönnum og launaþjófnað.
Stjórn stéttarfélagsins Virðingar segir félagið hafa verið stofnað af starfsmönnum veitingahúsa.
Hann segir ríkissjónvarpið hafa leitaði til sérfræðings í vinnurétti hjá BSRB í kvöldfréttatíma sunnudagsins og að sá sérfræðingur hafi talið að Efling gæti farið með málið fyrir Félagsdóm. SVEIT hafi aftur á móti ítrekað bent á að það sé dómstóla að leysa úr ágreiningi milli aðila hafi þeir lögvarða hagsmuni.
„Félagafrelsi er tryggt í stjórnarskrá. Hvorki Efling né Félagsdómur hafa vald til að fjalla um og ákveða hvort SVEIT er lögmætt félag,“ segir Sigurður.
„Forsvarsmenn Eflingar virðast gera sér grein fyrir þessu og ætla því með undirróðri og atlögum að einstaka fyrirtækjum að grafa undan starfsemi þeirra. Þetta er þekkt taktík stjórnenda og stjórnvalda sem telja sig boðbera og verndara sannleikans um sæluríkið.“
Færslu Sigurðar má lesa í heild sinni hér fyrir neðan: