Seinkanir hafa aukist mikið í leiðakerfi Strætós á höfuðborgarsvæðinu samhliða aukinni umferð.
Nú telur Strætó að grípa þurfi inn í með auknum forgangsakstri. Ein leið virðist sérstaklega óstundvís: leið 2 (Mjódd - Hamraborg - Háskóli Íslands) en hún var sein í 50% tilfella í nóvember.
Á minnisblaði sem deildarstjóri hjá Strætó kynnti á stjórnarfundi byggðasamlagsins í desember kom fram að vagnar hefðu verið seinir í 26,5% tilvika í nóvember 2024, sem er 7,5 prósentustiga aukning frá nóvember 2023. Verst var leið 2 en leiðir 15, 5, 11, 13, 14 og 17 voru allar seinar í 30-44% tilvika.
Fram kom að framkvæmdir við Arnarnesveg ættu þátt í hægagangi tvistsins en mælt var gegn því að bæta við aukavagni þar sem þær væru tímabundnar. Stjórn sendi sveitarfélögum ýmsar tillögur að forgangsaðgerðum sem komu fram á minnisblaðinu, en þar var einnig lagt til að fækka stoppistöðvum og lagfæra tímatöflur.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag