Fyrirhugað er að aðalmeðferð í Neskaupstaðamálinu svokallaða, þar sem karlmaður á fimmtugsaldri er ákærður fyrir að myrða hjón á áttræðisaldri með hamri, fari fram 10. og 11. febrúar og mögulega 12. febrúar ef þörf er á. Þetta kom fram í fyrirtöku málsins í Héraðsdómi Austurlands í dag.
Líkt og mbl.is fjallaði um þegar málið var þingfest í síðustu viku var til skoðunar að hafa fjölskipaðan dóm, þ.e. að dómari myndi hafa meðdómara með sér í málinu. Var dómarinn þá ekki búinn að skipa meðdómara.
Arnþrúður Þórarinsdóttir, saksóknari málsins, staðfesti við mbl.is að búið væri að ákveða meðdómara. Auk Hákons Þorsteinssonar, héraðsdómara við Héraðsdóm Austurlands, verða það þau Barbara Björnsdóttir, héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, og Tómas Zoëga geðlæknir.
Jafnframt staðfesti Arnþrúður að greinargerð verjanda hefði verið skilað og að engin ákvörðun hefði verið tekin um hvort málið yrði að hluta til lokað, en slíkt kom til umræðu við þingfestingu, þó að hvorki saksóknari né verjandi hafi farið fram á það.
Maðurinn hefur sætt gæsluvarðhaldi og vistun síðan í ágúst þegar hann var handtekinn. Er hann grunaður um að hafa valdið dauða hjónanna sem fundust látin á heimili sínu í Neskaupstað í ágúst. Hann neitar sök. Var krafa um vistun á viðeigandi stofnun síðasta staðfest af dómara til 14. mars.
Í ákærunni segir að maðurinn hafi veist að hjónum innandyra með hamri og hafi slegið þau bæði oft með hamrinum, einkum í höfuð, allt með þeim afleiðingum að þau hlutu bæði umfangsmikla og alvarlega áverka á höfði, þar á meðal ítrekuð brot á höfuðkúpum, áverka á heila og smærri áverka á öðrum hlutum líkama, en hjónin létust bæði af völdum áverka á höfði.
Að sögn vitna sást maðurinn við hús hjónanna að kvöldi 21. ágúst og segjast vitni skömmu síðar hafa heyrt „þung bank-högg“ úr íbúðinni. Sjúkraflutningamenn komu fyrstir á vettvang og greindu lögreglunni frá því að fólkið væri greinilega látið.
Í gögnum málsins kemur fram að maðurinn hafi viðurkennt við yfirheyrslur að hafa verið á heimili hjónanna í Neskaupstað en neitaði að hafa verið valdur að dauða þeirra. Þau hafi þegar verið látin. Útskýringar hans á því hvers vegna hann hafi ekki tilkynnt um slasað eða látið fólk þóttu ekki trúverðugar.
Maðurinn er auk manndráps ákærður fyrir vopnalagabrot og játaði hann sök í þeim hluta ákærunnar.