„Við erum stödd á víðsjárverðum tímum“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, hittust …
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, hittust í höfuðstöðvum bandalagsins í dag. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Stuðningur við Úkraínu og varnarviðbúnaður Atlantshafsbandalagsins var meðal þess helsta sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, ræddu í höfuðstöðvum bandalagsins í dag. 

Utanríkisráðherra kynnti áherslur ríkisstjórnarinnar í öryggis- og varnarmálum, meðal annars vinnu við varnar- og öryggisstefnu fyrir Ísland sem miðar að því að styrkja stöðu landsins í breyttum heimi, að segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. 

Innrás Rússlands í Úkraínu var sömuleiðis til umræðu og aðgerðir til að auka fælingar- og varnargetu bandalagsins, meðal annars á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum. Staða mála í Mið-Austurlöndum var einnig rædd. 

Stuðningur við Úkraínu eitt brýnasta verkefnið

Þá voru áherslur og undirbúningur leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins, sem fram fer í Haag í Hollandi í sumar, einnig til umræðu.

„Ísland hefur í um 75 ár tryggt öryggi sitt með þátttöku í Atlantshafsbandalaginu og tvíhliða varnarsamningnum við Bandaríkin. Nú þegar alþjóðakerfið á undir högg að sækja og Evrópa stendur frammi fyrir stærstu öryggisógn frá lokum síðari heimsstyrjaldar er mikilvægt sem aldrei fyrr að Ísland styrki eigin varnir og leggi sitt að mörkum til sameiginlegra öryggisskuldbindinga sem tryggja öryggi okkar allra,“ er haft eftir Þorgerði í tilkynningunni. 

Segir hún áframhaldandi stuðning við varnarbaráttu Úkraínu eitt brýnasta verkefnið og og það sé samofið okkar eigin öryggishagsmunum. 

„Við erum stödd á víðsjárverðum tímum í alþjóðapólitík og þurfum að vera vakandi fyrir okkar stöðu og því sem við getum gert til að leggja okkar af mörkum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert