Fjöldahjálpastöðvar opnaðar

Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir vegna snjóflóðahættu á Seyðisfirði …
Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir vegna snjóflóðahættu á Seyðisfirði og í Neskaupstað. Ljósmynd/Landsbjörg

Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir vegna snjóflóðahættu á Seyðisfirði og í Neskaupstað. Fjöldahjálparstöð verður opnuð í Egilsbúð í Neskaupstað kl. 13 og í Herðubreið á Seyðisfirði á sama tíma.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi segir að rýmingar hafi verið ákveðnar á eftirtöldum reitum:

Neskaupstaður:

Reitur NE01 við Norðfjarðarveg (Atvinnusvæði)

Reiur NE02 við Norðfjarðarveg og Nausthvamm (Atvinnusvæði)

Reitur NE18 (Íbúasvæði með 37 íbúðum/heimilum)

Hægt er að skoða rýmingarreiti á heimasíðu Fjarðabyggðar, með því að opna „skipulag“ og þar „rýmingarsvæði“.

Seyðisfjörður:

Reitir SE01 og SE02 við Strandarveg (Atvinnusvæði)

Reitir SE24 og SE26 við Ránargötu (Atvinnusvæði)

Hægt er að skoða rýmingarreiti á heimasíðu Múlaþings, með því að opna „skipulag“ og þar „rýmingarsvæði“.

Björgunarsveitarmenn munu ganga í hús á rýmingarsvæðum og leiðbeina íbúum varðandi rýmingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert