Greiðslur virka nú eðlilega

Ljósmynd/Colourbox

Truflanir sem voru á kerfum Reiknistofu bankanna nú snemma í morgun eru yfirstaðnar. Allar greiðslur virka nú eðlilega.

„Einhverjar smávægilegar truflanir geta verið á meðan verið er að vinnu úr atvikinu. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þessi bilun kann að hafa valdið,“ segir í tilkynningu frá Reiknistofu bankanna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert