„Það er mjög mikil óvissa um það hversu lengi þetta heldur áfram áður en eitthvað gerist en bara miðað við hvernig þetta hagaði sér síðast þá munum við örugglega hækka hættumatið einhverntímann í kringum mánaðamótin.“
Þetta segir Benedikt Gunnar Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is, aðspurður um stöðuna á Reykjanesskaga.
Hættumat vísar til þess að auknar líkur eru taldar á gosi sem hefur áhrif á viðbúnaðarstig viðbragðsaðila á staðnum.
„Þá höfum við nánari augu á þessu og menn tilbúnir í að það geti byrjað hvenær sem er,“ segir Benedikt. „En það þýðir ekki endilega að það byrji alveg strax, við gætum þurft að bíða svolítið.“
Þá segir Benedikt mikilvægt að bíða ekki of lengi með að hækka hættumatið, að fenginni reynslu.
„Miðað við hvernig þetta þjófstartaði síðast þá verðum við að passa okkur með að bíða ekki of lengi með að hækka þetta hættumat og það gæti þýtt að við þurfum að bíða lengur eftir gosi. Menn verða bara að vera þolinmóðir.“