Óli Örn aðstoðar Hönnu Katrínu

Óli Örn Eiríksson er nýr aðstoðarmaður atvinnuvegaráðherra.
Óli Örn Eiríksson er nýr aðstoðarmaður atvinnuvegaráðherra. Ljósmynd/Aðsend

Óli Örn Eiríksson hefur verið ráðinn sem aðstoðarmaður Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra. 

Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu segir að Óli Örn sé viðskiptafræðingur með meistaragráðu í nýsköpun og viðskiptaþróun frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn (CBS). 

Undanfarin ár hefur Óli Örn leitt atvinnu- og borgarþróunarteymi Reykjavíkurborgar þar sem hann hefur innleitt nýja atvinnu- og nýsköpunarstefnu, unnið að eflingu atvinnulífs í borginni og haldið utan um alþjóðleg rannsóknarverkefni. Áður starfaði Óli Örn meðal annars hjá Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar og SÍF Group.

Óli Örn hefur þegar hafið störf.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert