Bendir hveitifyrirtæki á kærumöguleika

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra. Samsett mynd

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir það mikið áhyggjuefni ef fram heldur sem horfir að hveitiframleiðslu verði hætt á Íslandi. Segir hún ríkisstjórnina hafa ríkan vilja til þess að búa svo um hnútana að hveitiframleiðslu verði áframhaldið á Íslandi. 

Líkt og fram kom í Morgunblaðinu mun hveitimylla Kornax í Korngörðum loka á næstunni. Sú var eina hveitimylla landsins og því verður allt hveiti á Íslandi innflutt héðan í frá.

Kornax sótti um leyfi til að reisa verkmiðju á Grundartanga en því var hafnað af Heilbrigðiseftirliti Vesturlands.

Hveitiframleiðsla haldi áfram 

Hanna Katrín segir ríkan vilja hjá ríkisstjórninni til þess að hveitiframleiðslan geti haldið áfram. Beinir hún m.a. orðum sínum til Kornax sem hafi heimild til að kæra ákvörðun heilbrigðiseftirlitsins.

„Ef innlendri hveitiframleiðslu er hætt þá hefur það áhrif matvælaöryggi vegna þess að innflutt hveiti hefur styttri geymslutíma en innlent og því tek ég undir áhyggjur hvað þetta varðar.

Kornax hefur lýst yfir áhuga á því að reisa verksmiðju við Grundartanga. Heilbrigðiseftirlit Vesturlands hafnaði því en við höfum verið að skoða þetta í ráðuneytinu og ég held að það geti mögulega verið að það sé hægt að skoða þetta betur. Það hafa orðið lagabreytingar og við þurfum að skoða það hvers vegna heilbrigðiseftirlitið synjar þeim um leyfi. Ráðuneytið hefur ekki beina aðkomu að því.

En ef Kornax kærir þá er komið af stað ferli sem við getum stigið inn í. Við viljum auðvitað allt til þess vinna að hveitiframleiðsla haldi áfram í landinu,“ segir Hanna Katrín.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert