Þrjú flóð féllu í gærkvöldi: Rýmingu aflétt

Neskaupstaður. Mynd úr safni.
Neskaupstaður. Mynd úr safni. mbl.is/Arnþór

Þrjú meðalstór flóð féllu í Neskaupstað í gærkvöldi en ógnuðu þó ekki byggð. Gott veður er nú í Neskaupstað og er búist við að rýmingu á Austurlandi verði aflétt fljótlega eftir hádegi.

Þetta upplýsir Ólíver Hilmarsson, ofanflóðasérfræðingur á snjóflóða- og skriðuvakt Veðurstofu Íslands.

Enn svolítil ofankoma á Seyðisfirði

Hann segir veðrið vera að ganga niður en nefnir jafnframt að meðalstór flóð hafi fallið úr Nes-, Ská- og Bakkagili í Neskaupstað í gærkvöldi en það hafi svo komið í ljós í morgun þegar það birti til. Flóðin hafi farið vel út úr giljunum en ógnuðu þó ekki byggð.

Þá hefur Veðurstofan ekki frétt af neinum flóðum á Seyðisfirði en segir Ólíver að enn sé svolítið ofankoma þar. Hins vegar sé fínasta veður í Neskaupstað.

„Þannig það er svona verið að bíða eftir því að þetta gangi alveg niður.“

Hættustigi aflýst

Uppfært kl. 12:13

„Veðurstofa Íslands hefur ákveðið að aflýsa hættustigi á rýmingarsvæðum í Neskaupstað frá klukkan 12:00 í dag. Öllum rýmingum í Neskaupstað hefur því verið aflétt. Íbúum á rýmingarsvæðum er óhætt að snúa heim og starfsemi hjá fyrirtækjum á rýmdum svæðum má hefjast að nýju.

 Verið er skoða stöðuna á Seyðisfirði. Gera má ráð fyrir að rýmingum þar verði aflétt síðar í dag,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert