Þykir gott að flóðin féllu

Gert er ráð fyrir að rýmingu verði aflétt á Seyðisfirði …
Gert er ráð fyrir að rýmingu verði aflétt á Seyðisfirði seinna í dag. Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Alltaf er gott þegar upptakasvæði snjóflóða losa sig við snjó en það kemur í veg fyrir að snjórinn byggist upp í stærri snjóflóð sem geta fallið síðar meir. 

Þetta segir í tilkynningu ofanflóðavaktar Veðurstofu Íslands.

Meðalstór en ógnuðu ekki byggð

Greint var frá fyrr í dag að í morgun hefðu þrjú flóð komið í ljós ofan við byggðina úr Skágili, Nesgili og Bakkagili sem líklega féllu í gærkvöldi.

Eru flóðin meðalstór og fara vel út úr giljunum en ógna þó ekki byggð. 

„Það er alltaf gott að upptakasvæði snjóflóða losi sig við snjó svo hann byggist ekki upp í stærri snjóflóð síðar meir,“ segir í tilkynningunni. 

Rýming enn í gildi á Seyðisfirði

Einnig kemur fram í tilkynningunni að á Seyðisfirði virðist hafa snjóað talsvert meira í gær og fyrradag og sé þar nú mikill snjór í fjöllum. Þar hafi éljabakkar verið í dag og sé því enn rýming þar í gildi.

Það er þó gert ráð fyrir að þar stytti upp í dag og hægt verði þá að aflétta rýmingu líkt og hefur verið gert í Neskaupstað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert