Megum búast við rigningu, slyddu eða snjókomu

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Suðaustanátt er spáð í dag og má búast við að hún verði allhvöss eða hvöss við suður- og vesturströndina, annars mun hægari.

Dálítil úrkoma verður af og til og hiti um frostmark en bjartviðri á norðan- og austanverðu landinu og fremur kalt.

Úrkomumeira verður á suður helmingi landsins á morgun og mega landsmenn búast við rigningu, slyddu eða snjókomu. Næst ströndinni ætti þetta að vera lengst af rigning en eftir því sem lengra inn á land er haldið færist úrkoman yfir í slyddu eða snjókomu.

Allt að sex stiga hiti

Fyrir norðan ætti að vera þurrt lengst af og jafnvel að það hláni þar sums staðar að auki.

Hlýjast verður suðaustanlands þar sem hiti verður 5-6 stig. 

Fjallvegir sunnan til á landinu gætu sumir hverjir orðið erfiðir yfirferðar.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert