Um 225 milljónir króna hafa verið greiddar í styrki vegna kaltjóna út til 89 umsækjenda úr Bjargráðasjóði, eða sem nemur 80% af væntanlegum styrk, vegna kaltjóns á Norðurlandi síðasta vetur.
Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu segir að sjóðnum hafi borist 121 gild umsókn. Þar af hafi 32 reynst vera undir lágmarki, þ.e. kal nam minna en 25% af heildarflatarmáli ræktarlands og/eða að tjón var metið á 500.000 kr. eða lægri upphæð.
Eftir er að greiða um tæpar 60 milljónir auk kostnaðar vegna aðkeyptrar vinnu við mat og yfirferð umsókna, að því er segir í tilkynningunni.
„Gert er ráð fyrir að fjárveiting stjórnar Bjargráðasjóðs upp á 300 milljónir króna muni þannig nýtast að fullu. Sérstakt 230 milljóna króna framlag kemur úr varasjóði fjárlaga og 70 milljónir koma af almennum fjárheimildum Bjargráðasjóðs í fjárlögum.“
Tjónamat er sagt reist á kostnaði við endurræktun og kostnaði við fóðuröflun vegna uppskerubrests.
„Við mat á umsóknum er einkum byggt á haustskýrslum úr tölvukerfinu Bústofni þar sem bændur skrá árlega fjölda búfjár og fóðuröflun. Það er mat sjóðsins að upphæð útdeildra styrkja dugi fyrir tæplega 70% af metnum heildarkostnaði vegna kaltjónanna að frádreginni eigin þátttöku umsækjenda sem nemur kr. 500.000,“ segir í tilkynningunni.
Áfram sé jafnframt unnið að mati á öðru tjóni vegna kuldakasts vorið 2023 samkvæmt tjónaskráningu sem liggur fyrir.
„Sú vinna hefur tafist þar sem viðeigandi gögn úr skýrsluhaldskerfum hafa ekki borist, áætlað er að gögn berist síðar í janúar. Það verkefni er á hendi matvælaráðuneytisins en ekki Bjargráðasjóðs.“