Gular veðurviðvaranir eru í gildi á Suður- og Suðausturlandi vegna mikillar snjókomu. Viðvaranirnar eru í gildi fram á nótt.
Á vef Veðurstofu Íslands segir að búist sé við talsverðri eða mikilli snjókomu með hægum vindi á Suðurlandi. Uppsöfnuð snjókoma á viðvörunartímabilinu gæti verið á bilinu 15 til 30 sentímetrar að dýpi og er spáð mestri úrkomu í uppsveitum og austan til á svæðinu.
Á Suðausturlandi er búist við að talsverð eða mikil snjókoma falli vestan til á svæðinu í frekar hægum vindi. Uppsöfnuð snjókoma á þeim hluta svæðisins gæti verið á bilinu 20 til 35 sentímetra dýpt.
Á vef Vegagerðarinnar segir að búast megi við því að vegir á sunnanverðu landinu verði þungfærir og jafnvel ófærir eftir að þjónustu lýkur í kvöld.