Landi forseti á Gimli

Sigrún til hægri varð kanadískur ríkisborgari í ágúst í fyrra.
Sigrún til hægri varð kanadískur ríkisborgari í ágúst í fyrra.

Sigrún Ásmundsson, dóttir Gunnvarar Daníelsdóttur og Snorra Ásmundssonar, flutti á fimmta ári með foreldrum sínum frá Íslandi 1970, ólst upp í Winnipeg til 15 ára aldurs, þegar fjölskyldan flutti nær Gimli, býr í Vancouver, varð kanadískur ríkisborgari í fyrrasumar og tekur við sem forseti Íslendingadagshátíðarinnar á Gimli í febrúar en hún hefur verið í stjórninni frá 2018 og meðal annars haft þar umsjón með íslenskri tískusýningu frá 2019.

„Á hátíðinni í ár beinum við athyglinni að þeim sem hafa byggt upp íslenska samfélagið hérna síðan 1875 og lagt sitt af mörkum í Kanada,“ segir hún.

Gunnvör hefur látið til sín taka í íslenska samfélaginu í Winnipeg og á Gimli. Sigrún segist því hafa kynnst starfseminni vel og tekið þátt í mörgum viðburðum áður en hún tók sæti í stjórn hátíðarinnar. „Ég fór fyrst í íslensku sumarbúðirnar á Gimli þegar ég var 10 ára og kynntist þá vesturíslenskum krökkum. Fleiri bættust í vinahópinn eftir að við fluttum í Húsatún skammt frá Gimli og við höfum haldið góðu sambandi síðan.“

Á Gimli. Fjölbreytt handverk er sýnt í Víkingaþorpinu á hátíðinni.
Á Gimli. Fjölbreytt handverk er sýnt í Víkingaþorpinu á hátíðinni. mbl.is/Steinþór Guðbjartsson

Vegleg hátíð

Sigrún leggur áherslu á að hún hafi alltaf hrifist af Vestur-Íslendingum og íslenskum hefðum þeirra, stutt þá í einu og öllu, en aldrei litið á sig sem hluta af hópnum. „Ég varð fyrst Vestur-Íslendingur þegar ég varð kanadískur ríkisborgari í ágúst 2024.“

Nokkrar íslenskar fjölskyldur fluttu til Winnipeg í kringum 1970 og var mikill samgangur þeirra á milli. „Við töluðum alltaf íslensku heima sem og við aðra Íslendinga og ég leit alltaf á mig sem Íslending,“ rifjar Sigrún upp. Hún segir að samskiptin við ættingja á Íslandi hafi ávallt verið mikil og þegar hún var 12 ára hafi hún verið í eitt ár á Íslandi og farið í íslenskan skóla til að bæta íslenskuna. „Ég man enn þann dag þegar ég áttaði mig á því að ég hugsaði á íslensku en ekki ensku.“ Hún hafi farið reglulega til Íslands og Daníel Guðmundur Bergman, sonur sinn, sé með tvöfalt ríkisfang.

Nánari umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu sem kom út fimmtudaginn 23. janúar. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert