Þorrinn hafinn með gný

„Þurr skyldi þorri, þeysin góa, votur einmánuður, þá mun vel …
„Þurr skyldi þorri, þeysin góa, votur einmánuður, þá mun vel vora,“ sagði í gömlu vísukorni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Þetta byrjaði með látum í hádeginu hjá okkur í Múlakaffi með hlaðborði þar sem á annað hundrað manns mættu. Stemmningin fyrir þorranum er gríðarleg,“ sagði Jóhannes Stefánsson, veitingamaður í Múlakaffi, við Morgunblaðið í gær og hafði með naumindum tíma til að segja nokkur orð þar sem hann var um það bil að hleypa gríðarmikilli veislu af stokkunum í Kópavoginum.

„Þetta verður stærsta þorraveisla sem haldin hefur verið, hér koma 2.500 manns,“ sagði þorrakóngurinn annálaði enn fremur, „það er bjart fram undan á þorranum, mikið að gera og endalausar veislur.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert