Alls voru á síðasta ári gerðar 2.019 liðskiptaaðgerðir hér á landi, þar af 1.208 á hné og 811 á mjöðm samkvæmt tölum sem embætti landlæknis hefur birt. Að auki gengust 29 einstaklingar undir slíkar aðgerðir á erlendum sjúkrahúsum á kostnað Sjúkratrygginga Íslands.
Eru þetta álíka margar aðgerðir og gerðar voru árið 2023 eftir að Sjúkratryggingar Íslands sömdu við tvö einkafyrirtæki, Klíníkina og Cosan, um að fjölga liðskiptaaðgerðum með það að markmiði að stytta biðlista og færa þessa þjónustu heim til Íslands.
Árið 2022 voru liðskiptaaðgerðir hér á landi samtals 1.545 og í lok þess árs biðu yfir tvö þúsund manns eftir þessum aðgerðum.
Á sama tíma hefur þeim fækkað sem farið hafa í liðskiptaaðgerðir í útlöndum en réttur til slíks skapast þegar fólk hefur beðið í tiltekinn tíma eftir slíkri aðgerð.
Samkvæmt upplýsingum frá Sjúkratryggingum Íslands gengust 74 einstaklingar undir liðskiptaaðgerðir í útlöndum árið 2022, árið 2023 gengust 37 undir slíkar aðgerðir erlendis og á síðasta ári 29 einstaklingar.
Enn eru samt langir biðlistar eftir þessum aðgerðum. Þannig biðu í upphafi ársins 995 einstaklingar eftir liðskiptum á hné og 408 biðu eftir liðskiptum á mjöðm, samkvæmt tölum landlæknisembættisins.
Umfjöllunina má lesa í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.