Lögreglu var tilkynnt um leðurblöku á flugi í hverfi 105 í dag. Lögregla mætti á vettvang og við skoðun á myndefni var það staðfest að um leðurblöku væri að ræða.
Þetta kemur fram í dagbók en þar segir að dýraþjónustunni hafi verið gert viðvart en dýrið hafði þá flogið á brott.
Málinu er ekki lýst frekar en leðurblökur eru sjaldséðar á Íslandi. Dýrin eru þekktir smitberar og komum þeirra til landsins hefur fjölgað á undanförnum árum.
Fyrir tæplega tveimur árum fannst leðurblaka í Kópavogi.
Árið 2015 fundust einnig þrjár leðurblökur á Siglufirði – laumufarþegar sem tóku sér far með dönsku skipi er sigldi frá Belgíu.
Í raun hafa að minnsta kosti átta mismunandi tegundir leðurblakna fundist á Íslandi, samkvæmt rannsókn frá árinu 2014.