„Ansi sérstakt“ ef Inga notfærði sér stöðu sína

Hvorki Inga né aðstoðarmenn hennar hafa svarað fjölmiðlum í dag.
Hvorki Inga né aðstoðarmenn hennar hafa svarað fjölmiðlum í dag. mbl.is/Eyþór Árnason

Formaður Skólameistarafélags Íslands segir það ansi sérstakt ef Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hringdi í skólameistara í persónulegum tilgangi og minnist í símtalinu á stöðu sína í samfélaginu og ítök innan lögreglunnar.

„Það er mjög sérstakt ef þeir [ráðamenn] gera það, hafa samband við embættismenn í persónulegum tilgangi,” segir Helga Kristín Kolbeins, formaður Skólameistarafélags Íslands, í samtali við mbl.is.

Greint var í dag á vef Vísis frá símtali sem Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, átti við skólameistara Borgarholtsskóla.

Samkvæmt heimildum mbl.is gat skólameistarinn ekki orða bundist vegna framgöngu ráðherra en Inga á að hafa minnst á stöðu sína í samfélaginu og ítök innan lögreglunnar vegna týnds skópars barnabarns síns.

Inga ekki látið ná í sig

Inga hefur hvorki svarað fjölmiðlum í kjölfar umfjöllunar um málið fyrr í dag né hafnað ásökununum á samfélagsmiðlum. Þá hafa aðstoðarmenn hennar heldur ekki svarað mbl.is.

Ársæll Guðmundsson, skólameistari Borgarholtsskóla, hefur staðfest við mbl.is að símtalið átti sér stað en vill ekki greina frá efnistökum þess.

Hafðir þú heyrt af þessu máli áður en fjölmiðlar byrjuðu að fjalla um þetta?

„Ég get ekki tjáð mig um það,“ segir Helga.

„Mér fyndist það ansi sérstakt

Ef rétt reynist, að Inga hafi minnst á vald sitt og ítök í persónulegum tilgangi, fyndist þér það alvarlegt?

„Mér fyndist það ansi sérstakt,“ segir Helga.

Hún kveðst ekki kannast við það að ráðherrar, þingmenn eða bæjarfulltrúar hafi áður minnt á vald sitt í samtölum við skólastjórnendur í persónulegum tilgangi.

„Það er frekar algjörlega í hina áttina. Þeir eru boðnir og búnir til þess að aðstoða og sýna stuðning.“

Þess ber að geta að í handbók um siðareglur ráðherra segir meðal annars:

„Ráðherra notfærir sér ekki stöðu sína í eiginhagsmunaskyni eða í þágu hagsmuna tengdra aðila.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert