Flóð féll yfir veg utan við Patreksfjörð snemma í morgun. Flóðið var ekki nálægt byggð og er talið að það hafi ekki haft áhrif á umferð.
Þetta segir Hulda Rós Helgadóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands.
Hún segir flóðið ekki hafa verið stórt. Það hafi fallið úr Raknadalshlíð og að algengt sé að flóð falli á veginn þar á svæðinu en vegurinn liggur alveg undir hlíðinni.
Þá hafi verið búið að snjóa mikið síðustu daga og nokkuð skrafrenningsfóður verið í hlíðinni.
„Sum fara bara í vegrás en eitt og eitt fer svona yfir veg af og til,“ segir Hulda.
Aðspurð segist hún gera ráð fyrir að Vegagerðin hafi verið mætt snemma eftir að flóðið féll til að hreinsa veginn áður en einhver hafi farið þar um.
Þá segist hún ekki eiga von á miklum flóðum næstu daga.
Það er ekki í kortunum að það muni falla flóð nálægt byggð en auðvitað gætu þau á einhverju stigi fallið á vegi og þá sérstaklega á Vestfjörðum.